Fyrsta hjálp & fyrstu viðbrögð
Öryggi þjónustunotenda er lykilatriði í starfi hjá Sinnum og starfsfólk sækir regluleg námskeið sem nýtast í daglegu starfi. Árlegt námskeið í fyrstu hjálp fór fram 7. nóvember, þar var farið yfir rétt fyrstu viðbrögð ef slys eða veikindi verða svo við séum vel í stakk búin til þess að aðstoða og jafnvel bjarga í neyð.
Breyting í eigandahópi Sinnum
Kristinn ehf. er nú eigandi að öllu hlutafé í Sinnum heimaþjónustu ehf. Sinnum var í upphafi stofnað af Ásdísi Höllu Bragadóttur og Ástu Þórarinsdóttur árið 2008. Árið 2017 keypti Kristinn ehf., sem er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu 30% hlut í félaginu. Hjá Sinnum verður áfram áhersla á að veita trausta og faglega þjónustu […]
Bleiki dagurinn 23. október 2024
Í tilefni af Bleika deginum 23. október gerðu starfsmenn Sinnum sér dagamun og klæddust bleiku til stuðnings Bleiku slaufunni, árlegu átaksverkefni tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum, á vegum Krabbameinsfélagsins. Bleiki dagurinn er einn af okkar uppáhaldsdögum hjá Sinnum.
Nýr hugbúnaður sem auðveldar umönnun aldraðra og sjúkra
Nýr hugbúnaður sem auðveldar umönnun aldraðra og sjúkra er kominn á markaðinn hér á landi. Forritið heitir dala.care og er þróað af hugbúnaðarfyrirtækinu Gangverki. Finnur Pálmi Magnússon er vöruþróunarstjóri dala.care. Hann segir í samtali við Morgunblaðið að búnaðurinn sé byggður á grunni verkefnis sem unnið var fyrir bandaríska hjúkrunar- og þjónustufyrirtækið TheKey. „Við lærðum heilmikið […]
Aðstoðarfólk óskast á Akureyri
Sinnum heimaþjónusta óskar eftir aðstoðarfólki á Akureyri fyrir 54 ára einstakling með MND og er í öndunarvél. Starfið byggist á stefnu Sinnum sem er að veita einstaklingsmiðaða, persónulega og sveigjanlega þjónustu svo hægt sé að mæta þörfum einstaklingsins í því umhverfi sem hann er í. Vinnutilhögun Helstu verkefni og ábyrgð Hæfniskröfur Við hvetjum öll áhugasöm […]
Hátíðarkveðja
Starfsfólk Sinnum heimaþjónustu óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og þakkar fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.
Jafnlaunastefna Sinnum
Jafnlaunastefnan er hluti af almennri launa- og jafnréttisstefnu Sinnum. Markmið hennar er að tryggja að fyllsta jafnréttis sé gætt milli kynja við launaákvarðanir. Starfsfólki skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt eða sambærileg störf. Jafnlaunakerfi Sinnum byggir á jafnlaunastaðfestingu og tekur til alls starfsfólks. Fyrirtækið skuldbindur sig til að sinna stöðugu eftirliti […]
Jafnlaunastaðfesting
Þann 19. apríl 2023 hlaut Sinnum ehf. Jafnlaunastaðfestingu frá Jafnréttisstofu. Jafnlaunastaðfesting er staðfesting Jafnréttisstofu á því að lögð hafi verið fram gögn sem sýna fram á, með fullnægjandi hætti, að launakerfi fyrirtækisins eða stofnunarinnar og framkvæmd þess mismuni ekki í launum á grundvelli kyns og uppfylla skilyrði 8. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu […]
Við erum flutt á Laugaveg 178
Sinnum hefur flutt aðsetur sitt á laugaveg 178, 2 hæð. Þar erum við til húsa í huggulegum heimkynnum með góðu aðgengi og auðvelt að fá bílastæði. Við tökum vel á móti viðskiptavinum og bjóðum upp á fría ráðgjöf.
Þarftu aðstoð við daglegt líf?
Frétt sem birtist fyrst á vef Kópavogsblaðsins. Sinnum heimaþjónusta hefur unnið að því síðustu ellefu ár að byggja upp fjölþætta velferðarþjónustu. Þjónustan er hugsuð fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda sökum aldurs, fötlunar, heilsubrests eða annarra persónulegra aðstæðna. Ásamt því að veita heimaþjónustu annast Sinnum vinnuprófanir fyrir VIRK starfsendurhæfingarsjóð. Ráðgjafi Sinnum útvegar skjólstæðingum VIRK […]