Sólarhringsþjónusta

Sinnum heimaþjónusta veitir sólarhringsþjónustu. Í því felst t.d. að fyrirtækið útvegar starfsfólk til að vera hjá skjólstæðingum yfir nóttina krefjist aðstæður þess.

Umönnun og aðstoð

Um er að ræða mjög víðtæka þjónustu sem felur í sér hverja þá aðstoð sem notandi þjónustunnar þarf við atferli daglegs lífs. Hægt er að fá fjölbreytta umönnun og aðstoð, svo sem við að fara á fætur, taka lyf, sinna persónulegri umhirðu, böðun o.s.frv.

Stoð- og stuðningsþjónusta

Starfsmenn Sinnum heimaþjónustu veita hvers kyns heimahlynningu og heimahjúkrun. Unnt er að fá aðstoð frá hjúkrunarfræðingum, þroskaþjálfum, sjúkraliðum eða öðrum heilbrigðisstéttum, allt eftir því hverjar þarfir einstaklingsins eru hverju sinni.

Menning og afþreying

Um er að ræða persónulegan stuðning og aðstoð innan heimilis eða utan til að rjúfa félagslega einangrun og auka virkni einstaklingsins. Hvers kyns samvera getur verið mikilvæg og starfsmenn Sinnum veita með mikilli ánægju aðstoð við bókalestur, bíóferðir, leikhúsferðir, ferðalög eða annað sem styttir stundir.

Hreyfing

Hreyfing getur skipt sköpum, hún bætir heilsu og eykur líkur á hollum lífsstíl.  Starfsfólk okkar aðstoðar við þjálfun líkt og styrktaræfingar, gönguferðir og sundferðir eða hverja þá hreyfingu sem skjólstæðingar okkar velja sér.

Útréttingar

Hægt er að fá aðstoð við hvers kyns útréttingar eða viðvik eins og að fara til læknis og versla inn. Eins sækjast sífellt fleiri eftir aðstoð við að versla á Netinu. Starfsmenn Sinnum heimaþjónustu geta bæði tekið að sér að annast slík viðvik eða veitt notendum stuðning við að gera slíkt sjálfir, svo sem með […]

Þrif og heimilisaðstoð

Starfsfólk Sinnum sinnir þrifum og annarri heimilisaðstoð tímabundið eða til lengri tíma, allt eftir aðstæðum. Í því felst almenn tiltekt, afþurrkun, þvottur, rúmfataskipti, þrif á gólfum, baðherbergi, skápum, gluggum og annað sem getur fallið til.

Máltíðir og næring

Veitt er aðstoð við undirbúning og frágang vegna máltíða og ráðgjöf og aðstoð við að nærast. Einnig er veitt aðstoð við skipulag og innkaup vegna máltíða. Fyrir eldra fólk sem er veikt eða borðar lítið þarf að gera einstaklingsbundnar ráðstafanir til að uppfylla næringarþörf og koma í veg fyrir vannæringu. Góð næring stuðlar að góðri […]

Stuðningur við aðstandendur

Komi upp þær aðstæður að aðstandendur ná ekki að sinna sínum nánustu með þeim hætti sem þeir kjósa, svo sem vegna anna eða fjarveru, þá hlaupa starfsmenn Sinnum heimaþjónustu í skarðið hvort sem er til lengri tíma eða skemmri.

Skráðu þig á póstlistann okkar